Skemmtileg byrjun á marsmánuði.

tyr_web Aðalfundur Týs var haldinn 28.febrúar síðastliðinn og var höfundur endurkjörinn formaður félagsins. Var fjölmennt á fundinum og eftir að fundi var slitið komu allir saman og þáðu veitingar í boði Týs.

Við skelltum okkur þann fyrsta mars til Blönduósar. Hélt Jörundur SUS dag og tók á móti okkur með þvílíkum hætti að lengi verður talað um gestrisni Blönduósinga. Það er augljóst að félagið er í mikilli sókn og eiga Lee-Ann og félagar hennar mikinn heiður skilið hvernig þau hafa tekið á starfsemi ungra og gert þau að einu öflugasta félaginu innan SUS.

Boðið var upp á súpu og brauð þegar við komum. Adolf Berndsen varaþingmaður og formaður Norðvestur nefndarinnar kom og kynnti aðaláherslur nefndarinnar. Var áhugavert að heyra hvað brennur á í sveitinni.

Eftir mikil fundarhöld í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins fórum við á Heimilisiðnaðarsafnið á staðnum. Höfundur vissi ekki hvað hann átti von á. Enda hefur áhuginn fyrir fornum heimilisiðnaði ekki endilega verið efst á lista áhugamálanna enn það var stórmerkilegt að sjá hvernig forfeður og mæður okkar klæddu sig og hvaða gríðarlega vinna var þar að baki.

Um kvöldið var kokteill í boði heimamanna og eftir hann var ferðinni heitið á góðan veitingarstað þar sem boðið var upp á þriggja rétta máltíð. Dagurinn endaði inn á sumarbústöðnum þar sem gítarleikurinn stóð fram eftir nóttu.

Það er hægt að nálgast myndirnar hér á heimasíðu Jörundar


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Hinriksdóttir

Sæll Hallgrímur „bloggvinur“ ... allir kátir? Gott að þú skemmtir þér vel á Blönduósi með félögunum. Þarf að heyra aðeins í þér vegna bókunar á síðasta fundi nefndarinnar okkar. Áttu kost á að hringja?

 Ps. notaðu púkann áður en þú birtir greinarnar þínar ...

Ingibjörg Hinriksdóttir, 8.3.2008 kl. 23:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband