4 - 5 febrúar. Línuvarðsla og Bandaríska prófkjörsbarátta.

Á þriðjudagskvöldinu var ferðinni heitið upp í Egilshöll eftir vinnu. Tók þar af mér að vera línuvörður í Reykjarvíkurmótinu sem stendur nú yfir. Spiluðu þar ÍR gegn Val í meistaraflokki kvenna.

valur1

Það er alltaf skemmtilegt að dæma í kvennaboltanum. Boltinn gengur oftar enn ekki meira á milli og það er skemmtilegt að sjá Valsstelpurnar nýta allan völlinn til að leita að smugu í vörninni hjá ÍR-ingum í þessum leik. Margrét var ekki í framlínunni, en það skipti ekki máli því að framlínan hjá Val er það vel setin í alla staði þó svo að klassi Margrétar er óumdeilanlegur.

Valsstúlkur eru stórhættulegar og fyrir línuvörð er það ekkert létt starf að vera á línunni hjá þeim. Þær eru alltaf á mörkunum að vera rangstæðar eða ekki og oftar enn ekki munaði það örfáum sentímetrum hvort þær væru fyrir innan eða ekki. Vörnin hjá Val er alveg jafn lífleg. Þegar þær eru undir mestu pressu þá er stanslaus á varnarlínunni. 5 metrar fram, 3 metrar aftur, 4 metrar fram og síðan 8 metrar aftur þ.e.a.s hvernig andstæðingurinn sækir á.

Þær eru klárlega í hóp sterkustu aðilum hvað Íslandsmeistaratitilinn varðar.

irgif

ÍR-ingarnir standa fyrir uppbyggingu eftir fallið á síðustu leiktíð. Þær virkuðu óöruggar í fyrri hálfleik. Boltinn gekk ekki nógu vel á milli, enda undir stöðugri pressu frá Valsstúlkum, fengu sjaldan tækifæri til að koma reglu á leikskipulagið. Komust einungis tvisvar í tækifæri í fyrri hálfleik.

Þær voru mun beittari í seinni hálfleik. Vörnin var mun betri og meiri oddur í sókninni. Það var augljóst að þau endurskipulögðu sig í hálfleik, enda var 0-5 fyrir Val, og einbeittu sér að gera mun betur. ÍR verða ofarlega í baráttunni í fyrstu deild í ár.

Leikurinn endaði 0-8 Völsurum í hag.

vokublom 

Í gær var ferðinni heitið í kosningarmiðstöð Vöku. Þó svo að ég þekki ekki marga sem eru í háskólanum, enda að verða 30 á næsta ári, þá er gaman að fylgjast með kosningunum á milli Vöku og Röskvu. Og að sjálfsögðu styður maður rétta framboðið. Áfram Vaka!!!!

 

 

USA-Flag 

Eftir á var horft á SUPER THUESDAY í Valhöll. Var virkileg bandarísk stemmning og það komu hátt í 100 manns í bylgjum. Örn Arnarson, stjórnmálafræðingur hélt skemmtilegt erindi um hvaða áhrif kosningarnar hafa. Gísli Marteinn, Borgarfulltrúi, fór yfir sögu forsetakosninganna síðastliðnu áratugi. Enn mestu aðdáun mína fékk Brad Evans frá Bandaríska Sendiráðinu. Hann hélt langt erindi um stöðuna, enn sem kom mér á óvart, á stórgóðri Íslensku. Vakti gríðarlega aðdáun mína í hans garð. Eftir á þá svöruðu þeir spurningum sem stóð í langan tíma, enda ekki oft tækifæri til að spyrja svona marga fróða menn í þessum málefnum í einu.

Tölurnar byrjuðu að berast um tíu leytið og því miður fór ég allt of snemma heim. Hefði geta setið þarna í nokkra klukkutíma í viðbót.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband