Færsluflokkur: Sjónvarp

The Condemned

405px-The-condemned-poster

Síðasta prófið lauk í dag svo að í kvöld var fyrsta kvöldið sem fór í sjónvarpsgláp í langan tíma. Tók 2 myndir. Sú fyrsta var myndin "Curse of the golden flower" en um hana mun ég fjalla síðar.

The Condemned er mynd sem flokka skildi í hóp B-mynda. Hugsuð sem ádeila á nútíma sjónvarp. Söguþráðurinn er ekkert sérstaklega frumlegur. Vondur og illgjarn sjónvarpskall fær flutta 10 dauðadæmda fanga á eyðieyju einhvern staðar á Kyrrahafinu. Þar eiga þeir að berjast við hvern annan þangað til einn stendur uppi. Verður bardaginn milli einstaklinganna sjónvarpaður á internetinu og getur almenningur horf á rauntíma hvernig þau myrða, kvelja, nauðga og útrýma hverjum öðrum. Sá sem lifir hryllinginn af mun verða veitt frelsi og einhvern ónefnda upphæð að fjármagni.

Hún er ekkert sérstaklega skemmtileg eða spennandi. Áhorfandinn veit að versti kallinn og virkilega super góði gæinn verða tveir eftir og allir vita að myndatökuliðið mun gjalda fyrir illsku sína sem og höfuðpaurinn. Enn hún kom mér til að hugsa um hvað langmesta sjónvarpsefni er í raun og veru orðið lélegt og ósmekklegt.

Þó svo að við séum ekki ( enn ) komið svo langt að myrða fólk í beinni þá eru ótrúlega margir þættir sem þrífast á mannlegu ógeði. Eitt dæmi um það er hvað margir njóta að sjá hvað öðrum liði illa.

Dr, Phil er eitt dæmi af því. Þar þrífst áhorfandinn á veikleikum annarra. Dr. Phil veit ráð við öllu og veltir upp veikleikum annar, sýnir þeim almenningi og birtir út um allan heim. Áhorfin eru gríðarleg. Það er óskiljanlegt hvað margir þrífast og njóta þess að horfa á veikleikum annarra. Kannski það lætur okkur líða betur þar sem VIÐ glímum ekki við svona SLÆM vandamál.

Það er meira talað um hvað hin svokölluðu stórstjörnur og hún Paris Hilton ( ef stjörnu má kalla) eða Britney Spears heldur enn um hluti sem skipta meiri máli í kring um okkur. Hvað skiptir það máli að Paris Hilton hafi verið á Stór-ballinu í einhverjum bæ í USA. Eða hvort Britney Spears hafi haft sér kynlífsherbergi í kjallaranum. Augljóslega miklu máli því að þetta eru mest lesnu fréttirnar í heiminum í dag.

Svona mætti lengi halda áfram.  

Einnig er mikið um hræðsluáróður. Er mikið um það í fjölmiðlum að fréttir koma þar sem haldið er fram að við séum alveg að farast. Fuglaflensan var mikið í umræðunni fyrir 2 árum. Þar áttum við von á útrýmandi faraldri eftir nokkrar vikur. Er dæmi um það að bændur hafi eytt öllum hænsnunum sínum eða ekki þorað að fara í golf að ótta við að smitast af fuglaflensunni í gegnum fuglaskít. Þetta var rætt út um allan heim vikunum saman. Enn ekkert hefur heyrst um þetta í langan tíma. Gerðir voru heimildarþættir hvernig ætti að bregðast við þegar faraldurinn brytist út.

Þetta er ekki einsdæmi. BSE vírusinn var einnig umfjöllunarefni fyrir nokkrum árum. Þar sem allir hættu að borða nautakjöt í nokkrar vikur. Nú er umfjölunin komin að veðurfarinu. Það er eins og við munum útrýma okkur sjálfum á næstu 5 árum ef við hættum ekki að keyra bíla.

Ástæðan fyrir þessari miklu birtingu "uppbyggilegs" sjónvarpsefni og "góðu" fréttanna í blöðum er sú endalausa vandamál margra fjölmiðla að fylla upp í síðurnar og selja blöðin sín. Ég skora á ykkur að taka Morgunblaðið eða Fréttablaðið á morgun og fletta því í gegn. Takið saman hvað margar fréttir eru jákvæðar og aðrar neikvæðar. Það mun koma ykkur á óvart hvert hlutfallið er. 

Auðvitað á ekki hætta birta og benda á hvað miður fer í heiminum, enn það á ekki að leggja alla áhersluna á það. Margar góðar fréttir geta verið fordæmi fyrir því að við byrjum að líta í kring um okkur . T.d var fréttin um ABC-barnahjálpina sem ég sá fyrir nokkurm árum hvati fyrir mig til þess að taka að mér að borga fyrir einn strák sem dvelur og lærir í barnaþorpi í Úganda.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband