Færsluflokkur: Tónlist
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins árið 2009
30.3.2009 | 01:48
Landsfundurinn er búinn og forystan fyrir næstu 2 árin kosin. Kosningarbaráttan er í aðsigi og er ég þeirra skoðunar að róðurinn verði erfiðari enn nokkru sinni fyrr.
Málefnastarfið á Landsþinginu var fjölbreyttara enn áður enda er Sjálfstæðisflokkurinn að taka á málefnum sem upp hafa komið sökum efnahagslægðarinnar sem geisar hér á landi. Ef borið er saman málefnastarfið á landsfundinum 2007 við landsfundinn sem var að ljúka þá er munurinn ótrúlegur. Við vorum að glíma við lúxusvandamál árið 2007, allir fullir bjartsýni og oft hafði ég þá tilfinningu að í sumum málaflokkum þá væri keimur af populisma sem ég hef aldrei verið fylgjandi.
Í ár er tíðin allt önnur. Við erum hægt og rólega að þokast aftur í áttina að góðu gildum og stefnu flokksins. Voru margar ályktanir algjörlega endurbættar í nefndastörfunum og var ljóst að margir litu svo á að við værum kominn allt og langt frá Sjálfstæðisstefnunni og okkar meginmáli, að vera „Stétt með stétt".
Evrópuályktunin var undirrituðum ekki að skapi. Voru þó drögin mun verri. Hefði ég viljað hreint nei við ESB. Ísland hefur enga hagsmuni að gæta í ESB ef við lítum á þau verkefni sem eru fyrir hendi næstu árin og sú óskhyggja að taka upp €vruna tveimur vikum eftir að við værum aðildarríki er það óraunsæjasta sem ég hef heyrt. Eftir að hafa búið í ESB yfir 10 ár þá er það eitthvað sem ég get sagt hér og nú að skyndiinnganga, langvarandi undanþágur og tvíhliða upptaka €vrunnar gerist ekki á skömmum tíma. Hvort sem okkur líka betur eða verr verðum við að glíma við okkar erfiðu aðstæðum með þeim tækjum og tólum sem við höfum við höndina í dag. Allt annað er ekkert nema slagorðakennd pólitík gerð til að villa fyrir.
Bjarni Benediktsson er nýr formaður Sjálfstæðisflokksins og óska ég honum til hamingju með kjörið. Tveir mjög frambærilegir einstaklingar buðu sig fram og var erfitt að gera hug sinn upp á milli þeirra. Nú þegar við göngum í eina erfiðustu kosningarbaráttu sem sjálfstæðisflokkurinn mun há er það gríðarlega mikilvægt að nýr formaður komi sem fyrst fram með kristaltæra stefnu byggða á okkar landsfundarályktunum. Við verðum að koma afdráttalaus fram, sjálfsgagnrýnin á fortíðina enn með lausnir fyrir framtíðina.
Ræðu landsfundar átti án efa Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Ef ekki eina bestu ræðu sem ég hef heyrt á landsfundi. Ég var heillaður af því með hvað auðmýkt enn festu hún kom fram, greindi frá viðkvæmum persónulegum sögum og gerð upp hennar störf eftir hrunið. Þeir sem mig þekkja vita að ég hef ekki verið mikill stuðningsmaður hennar sökum ólíkra málefnalegra skoðana enn þarna sýndi hún og sannaði að hún er verðugur varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Hlakka mér til að starfa með henni og taka á þeim erfiðum verkefnum sem framundan eru jafnt innan sem utan flokksins.
Ég ætla að enda þennan pistil með ræðu Davíðs Oddsonar. Aldrei hef ég verið eins undrandi eftir ræðu og þessa. Kom mjög á óvart að hann skyldi taka til máls á fundinum og var ræðunni beðið með eftirvæntingu. Hann var í upphafi hnitmiðaður og fyndinn enn fór svo út í sálma sem komu öllum á óvart sem á hana hlustuðu. Þó stendur upp úr hin grófu ummæli hans varðandi endurreisnarnefndina og Vilhjálm Egilsson.
Persónulega er mín skoðun að margir punktar í ritinu og ályktunni er ekki að mínu skapi. Enn í heildina litið er þetta fyrsta skrefið sem við sem flokkur verðum að taka til að rýna endanlega til gagns það sem betur mætti fara. Að hann skuli tjá sig á þennan máta, gera lítið úr störfum 80 einstaklinga sem komu að nefndinni og hreint og beint móðga Vilhjálm Egilsson er ekki athæfi sem hæfir það reyndum og virtum stjórnmálamanni sem hann Davíð Oddson er. Því skil ég ekki ummæli Bjarna Benediktssonar í viðtali í sjónvarpsfréttum RUV eftir fundinn. Þetta var ekki hans innlegg inn í starfið. Fundurinn var búinn að álykta, það gafst nógu mörg tækifæri fyrir Davíð Oddsson að tjá sig um drög og afgreiðslu. Því var þetta ekki harmlaus ummæli eins og Bjarni Ben komst að orði heldur atlaga sem ekki er viðeigandi á þessum landsfundi Sjálfstæðisflokksins eða frá fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)













Alfreð Símonarson
Andrea
Andri Heiðar Kristinsson
Arnar Geir Kárason
Arnljótur Bjarki Bergsson
Auðbergur Daníel Gíslason
Ármann Kr. Ólafsson
Árni Árnason
Árni Helgason
Árni Þór Sigurðsson
Ásta Berglind
Barack Obama
Benedikt Hallgrímsson
Birgir Ármannsson
Birkir Egilsson
Björg K. Sigurðardóttir
Björn Ingi Hrafnsson
Borgar Þór Einarsson
Brosveitan - Pétur Reynisson
Bryndís Haraldsdóttir
Bwahahaha...
Davíð
Davíð Örn Jónsson
Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
Edda Sveinsdóttir
Einar Kristinn Guðfinnsson
Elliði Vignisson
Erla Margrét Gunnarsdóttir
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
Eyþór Arnalds
Fannar frá Rifi
F.C Southampton vefsíðan
FreedomFries
Frelsisson
Geir Ágústsson
Guðfríður Lilja
Guðmundur Steingrímsson
Guðríður Arnardóttir
Gunnar Dofri Ólafsson
Gunnar R. Jónsson
Gunnlaugur Snær Ólafsson
Halldór Baldursson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Heidi Strand
Heimssýn
Herdís Sigurjónsdóttir
Hjörtur J. Guðmundsson
Hlynur Sigurðsson
Hrafn Jökulsson
Hrannar Baldursson
Ingólfur Þór Guðmundsson
Íhald.is
Jens Sigurðsson
Jóhann Alfreð Kristinsson
Jóhann Waage
Jón Ingi Stefánsson
Karl Tómasson
Kristín Hrefna
Kristján Valgeir Þórarinsson
Krummi
Magnús Már Guðmundsson
Margrét Elín Arnarsdóttir
Margrét Sverrisdóttir
Morgunblaðið
Ólafur fannberg
Ólafur Hannesson
Ólafur Örn Nielsen
Ómar Ragnarsson
Pétur Guðmundur Ingimarsson
Rauða Ljónið
Reynir Jóhannesson
Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Þ. Sigmundsson
Sigmar Guðmundsson
Sigurður Ingi Þórðarson
Sigurður Kári Kristjánsson
Sigurður Þorsteinsson
Snorri Bergz
Stefanía Sigurðardóttir
Stefán Friðrik Stefánsson
Stefán Þórsson
Stjórn Eyverja
Stjórnmál
Svavar Friðriksson
Sveinbjörn Ragnar Árnason
Sveinn Arnarsson
Sveinn Hjörtur
Sævar Guðmundsson
TómasHa
Unnur B. Johnsen
Vefritid
Vilhjálmur Andri Kjartansson
Vilhjálmur Árnason
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
Þarfagreinir
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir