Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
Aðdáendur Bayern Munchen á Íslandi.
3.6.2008 | 13:30
Höfundur er mikill aðdáandi og stuðningsmaður besta fótboltalið Þýskalands ( ef ekki heimsins, geri ráð fyrir miklum mótmælum frá Man. U aðdáendum) og er enn í stjórn aðdáandaklúbbs Bayern í heymabyggð minni í Þýskalandi. Enn ekki hefur hann hitt á neinn af hinum mikla aðdáendahóp Bayern hér á Íslandi.
hefur hugmyndin um að stofna aðdáendaklúbb Bayern Munchen hér á Íslandi verið lengi í hausnum á mér og er kominn tími til að framkvæma þá stóru framkvæmd.
Því leita ég eftir öllum Bayern aðdáendum sem lesa þetta og senda mér línu til þess að sjá hvað við erum margir dyggir stuðningsmenn.

Áfram Bayern !!!!!!!
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað á hann Ágúst Ólafur við?
10.7.2007 | 16:06
Ágúst Ólafur, varaformaður Samfylkingarinnar er ötull bloggari og er glettilega gaman að lesa skrif hans á bloggsíðunni hans. Hann er nú í ferðalagi í vöggu frjálshyggjunnar, USA, og lýsti ferð sinni til Disney-lands. Eitt atriði var áhugavert við skrif hans. Það voru þessar 2 málsgreinar sem vöktu athygli mína:
"Skilaboðin í Disney landinu mikla voru öll þau sömu. "Draumar þínir geta ræst". Sjálfur bandaríski draumurinn birtist þarna með glimmeri og glysi. Konan sagði mér einu sinni að ein skýringin á hærri glæpatíðni í Bandaríkjunum væri sögð sú að fólk er alið upp í þeirri trú að að allt sé mögulegt ef menn trúa því bara, að draumurinn geti orðið að veruleika, hafi menn bara nennuna og viljann til þess. En svo þegar að fólk upplifir að tækifærin eru ekki jöfn vegna skorts á öflugu velferðar- og menntakerfi sé ein birtingarmynd af gremjunni og vonbrigðunum afbrot. Fólk upplifir kerfið sem ósanngjarnt, að það sé vitlaust gefið í samfélaginu.
Aftur á móti væri staðan önnur í öðrum löndum á borð við Indland þar sem fólk er alið upp í því að það tilheyri sinni stétt og því hefði það ekki slíkar væntingar og upplifði þar af leiðandi ekki sambærileg vonbrigði eða gremju. Fátækt og afbrot væru því ekki endilega fylgifiskar heldur hafi það meira með væntingar að gera."
Hvernig á að skilja þessi ummæli hans. Það getur einfaldlega ekki verið að Ágúst sé að gefa í skin að jöfn tækifæri allra sem og frelsi einstaklingsins séu neikvæð.
Alla vega er það mín trú að von, trú og frelsi einstaklingsins sé mesti drifkrafturinn sem til er.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hjálp, ég er karlremba...
26.2.2007 | 14:51
Eftir alla umræðuna um klámþing, kynjakvóta og fleiri skemmtileg málefni lenti höfundur í sérstöku samtali við einn yfirlýstann róttækan feminista.
Ræddum við um heima og geima. Mismunandi pólitískar áherslur milli okkar, allt mjög málefnalegt. Allt í einu fer umræðan á það stig að hún kallar mig með miklum hroka og viðbjóð karlrembu. Ástæðan fyrir þessari hryllingslýsingu á höfundi var þessi:
Þegar konan mín og ég ákváðum að flytja til Íslands þá hafði ástandið verið nokkuð strembið allan tímann sem við vorum saman. Miriam er lærður snyrti- og förðunarfræðingur sem og Preuss-nuddari. Hún var með sjálfstæðan rekstur og er nú málið með það að lang flestir hafa ekki tímann á daginn til að koma til hennar heldur vann hún mikið á eftirmiðdögum og kvöldin. Þar sem reksturinn á snyrtistofum var harður á þessum tíma og hún var ein var það mikil pressa að í kringum fæðinguna hætti hún að vinna 4 vikum fyrir fæðingartíma og byrjaði að vinna 4 vikum eftir fæðingu.
Hún var búin að fá nóg. Það var algjört skilyrði að ef við fluttum til Íslands að hún þyrfti ekki að vinna svona mikið. Það sem hún vill er að vinna aðeins hálfan daginn og hún ætlast af mér að þéna nógu mikið svo að okkur sé fært að að lifa góðu lífi. Hún vill sjá um heimilið og Erik. Nú þegar hún er þunguð af okkar öðru barni hlakkar henni til að vera 9 mánuði heima og njóta þess að vera með fæddu barni sínu allan daginn.
Það er í hennar huga sjálfsagt að hún sjái um húsverkin. Og ég er alls ekki að gera lítið úr þeim. Eftir að hafa hjálpað í hreingerningunum sem við gerum á hverri árstíð þá er ég algjörlega búinn á því. Er það mikið verk og verður enn meira þegar krílið kemur í heiminn. Ég hjálpa eftir fremsta megni og er hún þakklát fyrir það. Stundum er ég algjörlega blindur á það sem þarf að gera. Sé ekki draslið eða óhreinu fötin sem ég skil eftir út um alla íbúð. En hún bendir mér á hlutina og ég geri þá. Vo einfalt er það. Staðan er einfaldlega sú að hún vill þessa skiptingu. Hún vill að verkefnaskiptin séu svona.
Þessi róttæki feministi sem ég ræddi við finnst þetta óheyrlegt. Ég er karlremba út af því að ég elyfi henni ekki að stunda þá iðju sem henni sæmir. Ég á að taka meiri þátt í heimilisstörfunum. Að minnsta lagi að taka að mér 40 % af heimavinnunni. Það sem ég ( takið eftir að það er í hennar huga ekki við sem tókum ákvörðunina heldur ég) er að gera er frumstætt og er ákveðin óréttlæti. Höft á hennar frelsi.
Konan mín er henni algjörlega ósammála. Orðrétt sagði hún: "Wenn du ein Macho bist weil ich halbtags arbeite, dann bin ich froh ein Macho geheiratet zu haben." ( Þýðing: Ef þú ert karlremba út af því að ég vinn bara hálfan daginn, þá er ég ánægð með það að vera gift karlrembu.)
Ég væri karlremba ef ég myndi neyða konuna mína að vinna allan daginn. Ég væri karlremba ef ég myndi ekki styðja konuna mína heilshuga, sama hvað dynur eins og hún styður mig.
Jöfn réttindi ólíkra þjóðfélagshópa eru mér mjög kær. Hvort sem þú ert karl, kona, samkynhneigður, nýbúi eða einfaldlega öðruvísi, þá áttu að sitja við sama borð og allir aðrir. Baráttan sömu réttindum kvenna og karla má ekki fara út í eitthvað rugl heldur á hver einstaklingu að hafa ákveðið frelsi til að velja hvernig hún eða hann vill haga hlutunum.
Björtu hliðarnar á tilverunni.
7.2.2007 | 16:30
Síðastliðið hálft ár hafa fréttirnar frá fjölskyldu konunnar minnar Miriam frá Þýskalandi verið eintómar sorgarfréttir. Má nefna að fimm mismunandi vinir eða nánir ættingjar tengdaforeldra minna hafa greinst með krabbamein eða aðra slæma sjúkdómi og eiga 3 ættingjar ekki mikið ólifað.
Í þokkabót hefur brennuvargur brennt niður 3 hlöður í heimabæ okkar Miriam. Þar á meðal var hlaða hjá nánum vini okkar og þar sem þetta var íkveikja þá fær hann ekki bætur frá tryggingafélugunum.
Svona gæti ég haldið áfram að segja frá því að ekki var þetta allt
Svo það má segja að fréttirnar um að Miriam sé þunguð séu einu fréttirnar sem hafa virkilega verið jákvæðar í fjölskyldunni og vinahóp okkar í Þýskalandi. Tók ég mig til, og ég tek það fram ekki út af eigin monti heldur út af bón þeirra, og skannaði sónarmyndirnar af krílinu og sendi út til þeirra sem báðu okkur um það.
Viðbrögðin komu mér á óvart. Tengdafaðir minn Klaus er eins og lítill drengur hoppandi af kæti ( tek ég fram að ég hef aldrei séð Klaus sýna tilfinningar áður ), amma hennar Miriam grætur af gleði þegar hún heyrir orðið "barn" á þýsku ( kemur það ekkert á óvart enda leitar hún að tilefnum til að gráta allan daginn, alla daga) og svo mætti lengi telja upp.
Það koma alltaf góðir dagar og það koma alltaf vondir dagar. Þó svo að við veljum alltaf þá leið að líta á björtu hliðar lífsins þá er það stundum erfitt, sérstaklega þegar margar erfiðar fréttir berast okkur á allt of skömmum tíma. Þar fyrir utan er fréttaflutningur í fjölmiðlum sem sýna ávalt slæmu hliðarnar á öllum málum, allt það slæma út í heimi og allt neikvæðnihjal yfir oft óþarfa hlutum sem lýsa oft hvaða lúxusvandamál við glímum við hér á Íslandi. ( Tek það samt skýrt fram að ekki megum við samt lífa í eintómu blindi og afneitun. Við glímum einfaldlega allt of oft við gervi vandamál í staðin fyrir að taka á alvarlegu málunum. )
Enn við megum aldrei gleyma því að það kemur nýr dagur eftir þennan dag og við megum ekki láta neikvæðnina ráða ferðinni. Lítum á allt sem er bjart í kringum okkur. Börnin okkar þegar þau brosa af gleði þegar þau líta upp og sjá okkur. Þegar manneskja sem þykir vænt um þig sínir það af einlægni. Eða bara hvað fallegt það er að ganga meðfram sjávarsíðunni í veðri eins og í dag.
Það er margt gott í kringum okkur. Við þurfum bara að taka eftir þeim
Ef þið viljið hlægja þá er hér linkurinn á það sem ég horfi á þegar ég vil hlægja.
Skref í rétta átt.
28.1.2007 | 21:44
Það gleður mig mjög að sjá fyrstu skreifin í átt að raunverukegri lausn á þessari deilu. Það er staðreynd að þessar tvær þjóðir með mismunandi trúarhópa munu þurfa að lifa í sátt og samlyndi við hliðina á hverju öðru. Hlusta á ólík sjónarmið hvort annað og skilja hvert annað.
Það getur tekið langan tíma enn það er betri leið heldur enn þessi óþörfu ofbeldisverk á milli aðila.
|
Arabískur múslími tekur sæti í ríkisstjórn Ísraels |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Raunverulegi boðskapur Vísindakirkjunnar.
24.1.2007 | 15:14
Mér var boðið einu sinni fyrir mörgum árum á eitthvern fund sem félagi minn í Þýskalandi hafði viljað mæta en treysti sér ekki einn. Það kom á daginn að þetta var trúarfundur ( Kynningafundur ) vísindakirkjunnar. Við vorum snöggir að láta okkur hverfa því við vildum hvorugir sitja undir heilaþvætti.
Það vildi samt til að félaginn hafði skráð okkur tvo undir nafni og heimilisfangi. Einn daginn var hringt dyrabjöllunni hjá mér og einn trúboði ( kynningarfulltrúi ) frá Vísindakirkjunni kynnti sig og spurði hvort hann mætti ekki koma inn. Ég sagði nei en rabbaði við hann í dyragætinni. Fór það svo að við settumst út í garði og hann byrjaði að kynna Vísindakirkjuna. Ég er þó nokkuð vanur að fá Votta Jehóva eða Mormóna til mín því að ég er alltaf kurteis við trúboða. Pabbi kenndi mér að bera virðingu fyrir trú almennt og því hef ég farið eftir.
Hann reyndi að útskýra fyrir mér hver sé boðskapur Vísindakirkjunnar. Ég ætla að reyna skrifa nákvæmlega frá eins og ég skildi boðskapinn en biðst afsökunar ef eitthvað sé rang túlkað hjá mér eða breyst í minningunni.
" Trú Vísindakirjunar er sú að fyrir milljónum árum þá var til geimverutegund ( man ekki hvað hún heitir ) á einhverrri plánetu langt frá okkur í alheiminum, sem var háþróuð og hættuleg. Þessar geimverur voru mjög þróaðar, mun þróaðri en okkar samfélag. Gátu ferðast milli pláneta og jafnvel stjörnuþokum. Eftir því sem þær urðu þróaðri þá lögðu þær fleiri og fleiri plánetur undir sig og útrýmdu íbúum sem voru fyrir. Oftast frystu þau þær.
Út af einhverjum ástæðum þá þurftu þessar geimverur að losna við alla þá sem þau frystu. Tóku þeir upp á því að fljúga með líkin til jarðar. Þar köstuðu þau ísklumpunum í eldfjöll jarðarinnar og losnuðu svona við úrganginn.
En sálir þessara sigruðu geimvera fengu ekki sína ró og sveimuðu úr eldfjöllunum. Ráfuðu þær um jörðina í leit af nýjum hýsingum. Lögðust þessar sálir á mannfólkið, sem var nýbyrjað að byggja jörðina, og settust að í líkama þeirra. Bera þeir ábyrgð á öllum þeim vondu gjörðum sem mannfólkið gerir, því að mannfólkið er hreint að eðlislagi.
Það sem Vísindakirkjan gerir fyrir sinn söfnuð er að hreinsa þá frá þessum geimverusálum. Annars fer allt í hundana."
Ég tek það fram að þetta er eina sem ég veit af Kirkjunni og eftir að hafa hlustað á þetta rugl bað ég hann vinsamlegast að fara sem hann gerði. Ég hef ekki kynnt mér neitt meira um kirkjunna svo að allt sem ég hef hérna eftir er ekki sannað að minni hálfu heldur segji ég einfaldlega frá hvað þessi trúboði sagði.
|
Tom Cruise er „Kristur“ Vísindakirkjunnar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Lítill neisti - Stórt bál
26.9.2006 | 10:41
Þetta er alveg einstakt dæmi um hvað smá ræða getur oldið miklu báli út um allan heim. Eins og flestir sem fylgast með fréttum hafa tekið eftir þá er þessi ófriður sem er á milli múslima og kristinna trúar búinn að stigmagnast með hverju ári sem líður. Og það er útlit fyrir því að ekki muni staðan batna.
Allir sem þekkja mig vita að ég er mikill baráttumaður jafnréttis í þjóðfélaginu hvað trúnna varðar. Og hver og einn á rétt á því að stunda þá trú sem hann vill svo framarlega að það skerðir engann einstakling í kringum hann. En þegar málin eru farin að snúast um hatur milli minnihlutahópa sem misnota trúnna til að ala hatur milli ólíkra hópa, þá endar skilningur minn.
Ræða Benedikt páfi hélt ræðu sem innihélt punkta sem uldu miklum usla í múslimaríkjum. Og mín skoðun er sú að hún hafi verið óþarfi og eyðilagt þá milklu og áralöngu vinnu sem kaþólska kirkjan hefur lagt í til að styrkja tengsli milli ólíkra trúarhópa í heiminum. Ég get bara ekki trúað því að svona gáfaður og virðingamikil maður eins og Benedikt hafi ekki séð fram á það. Enn þá spyr ég líka: Ef hann gerði sér fyrir því hvaða afleiðingar þessi ræða mundi hafa, af hverju hélt hann ræðuna??
Komum þá að múslimum. Álit almennings á Íslam hefur verið í lámarki undanfarin ár. Því miður hafa öfgafullir minnihlutahópar svert ásýnd Íslam með kaldrifjuðum og fáranlegum hryðjuverkum sem endurspeglar ekki vilja meirihluta múslima. Sérstaklega eftir skopmyndamálið í Danmörku, þar sem ýmsir klerkara fóru í rógburðaferð til ýmisa ríkja og notuðu skopmyndir bæði ófalsaðar og falsaðar sem rök til að ýta undir hatur í garð Dani, þá spyr fólk sig hvaða tilgang það hafi að auka hatrið milli trúarbragðana. Danmörk er frægt fyrir að vera opin fyrir öllum hópum og hafa lagt sig fram að mynda þjóðfélag þar sem allir geta lifað saman eiga ekki skilið að vera dregið svona niður. Enda fordæmdu Danskir múslimar athæfi þessara klerka sem sýnir að þetta eru flest allir minnihlutahópar sem fylgja þessum trúarofstækisöfgum.
Ég vona að við sem berjumst fyrir trúfrelsi og jafnræðis í trúmálum berjumst fyrir samvinnu ólíkra trúarhópa á Íslandi og komum á móts við hvern annan til að tryggja friðsamleg samskipti og almenna virðingu milli ólíkra trúarhópa .
|
Páfi fundaði með sendifulltrúum múslíma |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |















Alfreð Símonarson
Andrea
Andri Heiðar Kristinsson
Arnar Geir Kárason
Arnljótur Bjarki Bergsson
Auðbergur Daníel Gíslason
Ármann Kr. Ólafsson
Árni Árnason
Árni Helgason
Árni Þór Sigurðsson
Ásta Berglind
Barack Obama
Benedikt Hallgrímsson
Birgir Ármannsson
Birkir Egilsson
Björg K. Sigurðardóttir
Björn Ingi Hrafnsson
Borgar Þór Einarsson
Brosveitan - Pétur Reynisson
Bryndís Haraldsdóttir
Bwahahaha...
Davíð
Davíð Örn Jónsson
Deiglan.com - Vefrit um þjóðmál
Edda Sveinsdóttir
Einar Kristinn Guðfinnsson
Elliði Vignisson
Erla Margrét Gunnarsdóttir
Erla Ósk Ásgeirsdóttir
Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
Eyþór Arnalds
Fannar frá Rifi
F.C Southampton vefsíðan
FreedomFries
Frelsisson
Geir Ágústsson
Guðfríður Lilja
Guðmundur Steingrímsson
Guðríður Arnardóttir
Gunnar Dofri Ólafsson
Gunnar R. Jónsson
Gunnlaugur Snær Ólafsson
Halldór Baldursson
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Heidi Strand
Heimssýn
Herdís Sigurjónsdóttir
Hjörtur J. Guðmundsson
Hlynur Sigurðsson
Hrafn Jökulsson
Hrannar Baldursson
Ingólfur Þór Guðmundsson
Íhald.is
Jens Sigurðsson
Jóhann Alfreð Kristinsson
Jóhann Waage
Jón Ingi Stefánsson
Karl Tómasson
Kristín Hrefna
Kristján Valgeir Þórarinsson
Krummi
Magnús Már Guðmundsson
Margrét Elín Arnarsdóttir
Margrét Sverrisdóttir
Morgunblaðið
Ólafur fannberg
Ólafur Hannesson
Ólafur Örn Nielsen
Ómar Ragnarsson
Pétur Guðmundur Ingimarsson
Rauða Ljónið
Reynir Jóhannesson
Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Þ. Sigmundsson
Sigmar Guðmundsson
Sigurður Ingi Þórðarson
Sigurður Kári Kristjánsson
Sigurður Þorsteinsson
Snorri Bergz
Stefanía Sigurðardóttir
Stefán Friðrik Stefánsson
Stefán Þórsson
Stjórn Eyverja
Stjórnmál
Svavar Friðriksson
Sveinbjörn Ragnar Árnason
Sveinn Arnarsson
Sveinn Hjörtur
Sævar Guðmundsson
TómasHa
Unnur B. Johnsen
Vefritid
Vilhjálmur Andri Kjartansson
Vilhjálmur Árnason
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson
Þarfagreinir
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir